Harpa Snædal ráðin yfirlæknir námslækna
28. febrúar 2024
Harpa Snædal, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir á SAk, hefur verið ráðin í starf yfirlæknis námslækna á sjúkrahúsinu.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/9JfAaAT5VTJxeM5rYFXiB/12dcf2b5466a56e94b8f5b48d9045055/Untitled_design__15_.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Harpa Snædal, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, yfirlæknir námslækna](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/9JfAaAT5VTJxeM5rYFXiB/12dcf2b5466a56e94b8f5b48d9045055/Untitled_design__15_.png?w=774&fm=webp&q=80)
Verkefnin voru áður á höndum deildarstjóra mennta- og vísindadeildar en með þessari breytingu munu starfsmannamál og nám unglækna vera aðskyld og þannig fá unglæknar betri stuðning í námi og starfi.
Verkefni yfirlæknis námslækna eru meðal annars:
Tekur þátt í að skipuleggja mönnunarlíkan unglækna á sjúkrahúsinu og hefur yfirsýn yfir árið í samráði við verkefnastjóra vaktaplans, umsjónardeildarlækna og starfsfólk mennta- og vísindadeildar.
Kemur að breytingum á vaktaplani með stuttum fyrirvara, t.d. vegna veikinda eða manneklu í samvinnu við verkefnastjóra vaktaplans, yfirlækna og umsjónardeildarlækna.
Umsjón með umbótaverkefnum.
Handleiðari unglækna á launaskrá sem ekki eru í skipulögðu námsprógrammi.
Mennta- og vísindadeild mun áfram hafa yfirumsjón yfir faglega hlutanum og námi unglækna þ.e. samstarfssamningum við aðrar stofnanir og háskóla, samvinnu um sérnám/sérnámsgrunn og skipulag blokka og móttöku. Einnig er deildin áfram með yfirumsjón yfir kennslu- fræðslu-, vísinda- og gæðamálum námslækna svo og að vinna áfram að skipulagi varðandi kynningar og löðun námslækna í samráði við yfirlækna.
Við Sjúkrahúsið á Akureyri starfa um 25 unglæknar og er því um að ræða fjölmennustu lækna-einingu innan sjúkrahússins.