Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Hannes Petersen heiðraður á Evrópuþingi háls-, nef- og eyrnalækna

28. maí 2026

Hannes Petersen háls-, nef- og eyrnalæknir við Sjúkrahúsið á Akureyri hélt nýverið fyrirlestur á Evrópuþingi háls-, nef- og eyrnalækna sem haldið er annað hvert ár og er stærsta fagþing Evrópu á þessu sviði. Forseti þingsins bauð Hannesi sérstaklega að flytja fyrirlestur um rannsóknir sínar á sviði jafnvægisvísinda á þinginu, en jafnframt viðurkenningu fyrir framlag sitt til rannsókna á þessu sviði.

Hannes hefur um árabil sinnt rannsóknum sem einkum hafa beinst að hreyfiveiki og jafnvægisvandamálum hjá öldruðum. Þá hefur hann einnig verið virkur þátttakandi í rannsóknum Hjartaverndar í gegnum tíðina. Á ferli sínum hefur hann birt yfir 100 vísindagreinar.

„Það er alltaf sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að hitta samstarfsmenn og vini úr faginu víðs vegar að úr Evrópu og fylgjast með því sem efst er á baugi í rannsóknum og klínísku starfi. Að fá jafnframt viðurkenningu fyrir rannsóknarstarf sem maður hefur sinnt í gegnum árin er bæði mikill heiður og hvatning. Auðvitað vonar maður að þessi rannsóknarvinna hafi skilað aukinni þekkingu og betri skilningi sem nýtist sjúklingum til framtíðar,“ segir Hannes Petersen.

Á þinginu komu saman sérfræðingar alls staðar að úr Evrópu til að ræða nýjustu framfarir og rannsóknir á sviði háls-, nef- og eyrnalækninga, þar á meðal jafnvægis- og heyrnarrannsóknir, greiningu og meðferð sjúkdóma auk nýjunga í tækni og meðferð.