Gjöf til blóðskilunardeildar SAk
12. júní 2024
Gjöf til minningar um Svölu Tómasdóttur.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5uRIE8UgV3OyxDQkwhRSzv/ec7d83a6b70b526a678c86f70723ee87/bl__skilun.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Gjöf til blóðskilunar](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5uRIE8UgV3OyxDQkwhRSzv/ec7d83a6b70b526a678c86f70723ee87/bl__skilun.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Í dag, 12. júní, fékk blóðskilun SAk gjöf til minningar um Svölu Tómasdóttur.
Svala var í blóðskilun í rúm 3 ár en hún lést 23. desember 2023. Það voru skólasystur Svölu frá Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði sem gáfu gjöfina.
Gjöfin innihélt hitateppi fyrir skjólstæðinga og örbylgjuofn til að hita grjónapoka á axlirnar ásamt hitapúða fyrir axlir handa starfsfólki.
Þessi gjöf mun nýtast okkar fólki mjög vel og erum þakklát fyrir velvild og hlýhug, segir Sólveig Tryggvadóttir verkefnastjóri á blóðskilun.
Á meðfylgjandi mynd eru Sigríður M Gamalíelsdóttir, Sigurlína G Jónsdóttir og Sólveig Tryggvadóttir.