Fara beint í efnið

Gjöf frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis

29. nóvember 2023

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON) kom færandi hendi á dögunum og afhenti lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri svokallaðar verkjadýnur. Þær eru sérstaklega hannaðar fyrir sjúklinga með verki en reynast einnig vel sem legusáravörn.

Gjöf frá KAON nóv. 2023

„Við höfum hingað til þurft að forgangsraða þeim sem þurfa hvað mest á þessum dýnum að halda þar sem við áttum ekki nógu margar – núna verður þetta auðveldara fyrir okkur,“ segir Ester Þóra Bragadóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis er mikið í mun að styðja við krabbameinssjúklinga og í sameiningu við starfsfólk SAk var það lendingin að verkjadýnurnar væru mest aðkallandi. Enn fremur hefur félagið hug á því að styðja við líknarstarf á sjúkrahúsinu.

Fyrir um ári síðan styrkti KAON einnig almenna göngudeild SAk með kaupum á skjá sem hangir inni á biðstofu og sýnir efni sem er gagnlegt fyrir krabbameinssjúka og aðstandendur þeirra.

Gjöf frá KAON 2023 - 1

Nánari upplýsingar um Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis má finna hér: www.kaon.is

Á 1. mynd með frétt frá vinstri: Hafdís Sif Hafþórsdóttir meðstjórnandi KAON og starfsmaður lyflækningadeildar, Maron Björnsson meðstjórnandi KAON, Þóra Ester Bragadóttir deildarstjóri lyflækningadeildar, Sólveig Hulda Valgeirsdóttir aðstoðarforstöðuhjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild og Þórunn Sif Héðinsdóttir ritari KAON.

Á 2. mynd með frétt frá vinstri: Þórunn Sif Héðinsdóttir ritari KAON, Hafdís Sif Hafþórsdóttir meðstjórnandi KAON og starfsmaður lyflækningadeildar, Sigrún Rúnarsdóttir hjúkrunarfræðingur á almennu göngudeildinni og Maron Björnsson meðstjórnandi KAON.