Fara beint í efnið

Fyrsti íslenski forseti samtaka fæðinga- og kvensjúkdómalækna á Norðurlöndunum

1. september 2023

Alexander Smárason yfirlæknir fæðinga- og kvensjúkdómalækninga Sjúkrahússins á Akureyri og prófessor við heilbrigðisvísindastofnun HHA var nýverið kosinn forseti NFOG, samtaka fæðinga- og kvensjúkdómalækna á Norðurlöndunum. Þetta er í fyrsta skiptið sem Íslendingur gegnir þessari stöðu.

Alexander Smárason

Áður var Alexander í 6 ár einn af ritstjórum fagtímarits sambandsins (Acta Obstetricia et Gynecologica Scandinavica) og síðan í stjórn NFOG í 10 ár - fyrst sem formaður vísindanefndar NFOG og síðan sem formaður FíFK félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna.

Aðalmarkmið félagsins er að vinna að öflugu vísindastarfi og efla samstarf milli fæðinga- og kvensjúkdómalækna á norrænum sjúkrahúsum. Samtökin eru mjög virk og halda ráðstefnur reglulega.

Nánar má lesa um samtökin hér.