Forstjóri SAk tók þátt í alþjóðlegri sjúkrahúsráðstefnu í Genf
27. janúar 2026
Dagana 11.–13. nóvember fór fram 48. alþjóðlega sjúkrahúsráðstefnan (World Hospital Congress) á vegum International Hospital Federation (IHF) í Genf. Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk, tók þátt, stýrði málstofu undir yfirskriftinni „Powering low-carbon hospitals: Energy, strategy, and resilience“ og hélt tvo fyrirlestra: „Women in Leadership“ og „Safe Maternity Care”.

Forstjóri SAk í Genf
Alþjóðlegar áherslur í heilbrigðisþjónustu
Á ráðstefnunni, sem sótt var af um 1.500 þátttakendum frá 80 löndum, var fjallað um lykilþætti í þróun heilbrigðisþjónustu á heimsvísu: sjálfbærni, nýsköpun, stafrænar lausnir og leiðtogafærni. Lögð var áhersla á að heilbrigðiskerfi víða um heim standi á tímamótum þar sem seigla, forysta og stafræn umbreyting muni ráða miklu um gæði og stöðugleika. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi leiðtoga sem byggja upp traust með virkri hlustun, gagnsæjum samskiptum og getu til að taka ákvarðanir í flóknum og síbreytilegum aðstæðum.
Mönnun og starfsaðstæður í brennidepli
Hildigunnur segir að áskoranir og tækifæri sjúkrahúsa um allan heim séu að mörgu leyti sambærileg. „Stærsta sameiginlega áskorun sjúkrahúsa er nú sem áður mönnun og starfsaðstæður. Skortur á heilbrigðisstarfsfólki, kulnun og breyttar væntingar starfsfólks kalla á nýjar lausnir, svo sem aukinn sveigjanleika, skýra starfsþróun og stafrænar lausnir sem létta á álagi, auka skilvirkni og styðja við starfsfólk,“ segir Hildigunnur.
Tækifæri í þróun tækninnar
Á ráðstefnunni var jafnframt lögð rík áhersla á sjúklingamiðaða þjónustu og áhrif tækniframfara á heilbrigðisþjónustu. Þar var meðal annars rætt um þau tækifæri sem felast í innleiðingu gervigreindar og fjarheilbrigðisþjónustu. „Hins vegar er mikilvægt að hafa í huga að samhliða þessum tækifærum er mikilvægt að leggja áherslu á utanumhald gagna, öryggi og siðferðileg álitaefni,“ segir Hildigunnur.
Aukin samvinna fremur en hefðbundinn niðurskurður
Fjármögnun og rekstur sjúkrahúsa var einnig ofarlega á baugi á ráðstefnunni. Að sögn Hildigunnar voru áhyggjur af rekstri sjúkrahúsa víða um heim sameiginlegt umræðuefni meðal þátttakenda. „Mikið var rætt um snjöll rekstrarmódel sem byggja fremur á auknu samstarfi og nýtingu þekkingar en hefðbundnum niðurskurði,“ segir hún og bætir við „heilbrigðiskerfi víða um heim standa frammi fyrir fjölbreyttum áskorunum og það er ákaflega mikilvægt að Sjúkrahúsið á Akureyri taki virkan þátt í alþjóðlegri samvinnu sem styrkir stefnumótun og framtíðarsýn.“
Hér má lesa nánar um ráðstefnuna: Homepage | IHF - International Hospital Federation