Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Flutningar á dag- og göngudeildarþjónustu geðdeildar

8. apríl 2026

Nú standa yfir flutningar á hluta af dag- og göngudeildarþjónustu geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri í nýtt húsnæði að Hafnarstræti 97, 6. hæð.

Gengið inn á sama stað og á heilsugæslunni áður, hvort heldur sem er úr göngugötu eða að ofan frá Gilsbakkavegi.

Sú starfsemi sem flyst nær til allrar dagþjónustu sem sinnir bæði legudeildar- og göngudeildarsjúklingum, sem og hluta af göngudeildarþjónustu.

Flutningarnir munu hafa tímabundin áhrif á þjónustu. Engin dagþjónusta verður veitt fyrir legudeildarsjúklinga nk. föstudag, en hún hefst á ný mánudaginn 13. apríl með breyttri dagskrá í nýju húsnæði.

Sjúklingar í dagþjónustu á göngudeild hafa flestir þegar fengið boðun í viðtöl í næstu viku á nýjum stað. Ný dagskrá fyrir dagþjónustu hefst mánudaginn 20. apríl með nýrri dagskrá.

Björg bjargráðarhópur mun einnig hefjast á nýjum stað mánudaginn 13. apríl.

Þeir sem eiga bókuð viðtöl á göngudeild munu fá upplýsingar um breytingar á staðsetningu viðtala eftir því sem við á.

Við leggjum áherslu á að gera flutningana sem þægilegasta og hlökkum til að taka á móti skjólstæðingum í Hafnarstrætinu.