Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Fjölmenni í heimsókn á dag- og göngudeild geðdeildar

14. október 2025

Í tilefni Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins þann 10.október sl. opnaði starfsfólk dag- og göngudeildar geðdeildar dyrnar og bauð gestum að kynna sér starfsemina, tækjabúnað og aðstöðuna. Gera má ráð fyrir því að yfir hundrað gestir hafi komið í heimsókn til okkar að þessu tilefni.

„Það kom ánægjulega á óvart hversu margir gestir komu í heimsókn til okkar að þessu tilefni. Nýja TMS tækið okkar vakti skiljanlega mikinn áhuga, enda getur það haft gríðarlega jákvæð áhrif í meðferð við alvarlegu þunglyndi. Geðræktarhundurinn okkar Atlas vakti líka lukku meðal gesta og ófáir sem gáfu sér tíma til að leika örlítið við hann. Þá gafst okkur líka góð tækifæri til samtals um hlutverk okkar og starfsemi og er það ákaflega verðmæt að finna þann ríka stuðning sem við fáum við okkar hlutverk víða í samfélaginu.“ Segir Gestur Guðrúnarson, deildarstjóri dag- og göngudeildar geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri.