Evrópudagur sjúkraliða
27. nóvember 2023
Sunnudaginn 26. nóvember var haldið upp á evrópudag sjúkraliða. Við Sjúkrahúsið á Akureyri starfa um 100 sjúkraliðar í hinum ýmsu störfum. Anna Fanney er ein þeirra.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/28ZrybqMv8GklP5XDJyypa/f1e0c03eb087671f74e734b1fea7e93a/Anna_Fanney_Stef_nsd_ttir_Sj_krali_i_Gj_rg_sludeild-PEDR5376.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Anna Fanney Stefánsdóttir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/28ZrybqMv8GklP5XDJyypa/f1e0c03eb087671f74e734b1fea7e93a/Anna_Fanney_Stef_nsd_ttir_Sj_krali_i_Gj_rg_sludeild-PEDR5376.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Nafn: Anna Fanney Stefánsdóttir
Fæðingarár: 1990
Hvaðan ertu: Akureyri
Menntun: Sjúkraliði og heilsunuddari
Áhugamál: Mér finnst ótrúlega gaman að ferðast, lesa glæpasögur og tók upp á því í fyrra að finnast gaman á gönguskíðum! (Þrátt fyrir að hafa sinnt mörgun brotnum sjúklingum eftir gönguskíðaóhöpp😉).
Hvað varstu í fyrra lífi: Forystukind
Hvernig lítur dagur út í lífi sjúkraliða á SAk: Mæta í vinnuna, fá sér kaffi og athuga hvað er í matinn. Að öllu gamni slepptu lítur hann mjög vel út. Annarsamur, fjölbreyttur, fræðandi og krefjandi. Fullur af hugulsemi og kærleik, þakklæti, hlátri og gleði.
Hvað er skemmtilegast í vinnunni: Sjá framfarir sjúklinga sinna, allt nammið og auðvitað hvergi betra og skemmtilegra samstarfsfólk❤️.
Hvað er mest krefjandi í vinnunni: Að geta ekki bjargað öllum.
Við óskum öllum sjúkraliðum til hamingju með daginn!
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4CydArO69h8cJRup7Hfs67/993d922b9f9b003c9f909c405a4c2dba/Anna_Fanney_Stef_nsd_ttir_Sj_krali_i_Gj_rg_sludeild-PEDR4371.jpg?w=50)
![Anna Fanney Stefánsdóttir](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4CydArO69h8cJRup7Hfs67/993d922b9f9b003c9f909c405a4c2dba/Anna_Fanney_Stef_nsd_ttir_Sj_krali_i_Gj_rg_sludeild-PEDR4371.jpg)