Fara beint í efnið

Dagur sjúkrahússins á Glerártorgi á laugardaginn kl. 14 til 16

24. nóvember 2023

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) ásamt starfsfólki sjúkrahússins standa fyrir hátíð á Glerártorgi laugardaginn 25. nóvember nk. milli kl. 14:00 og 16:00. Slík hátíð á Glerártorgi hefur verið árviss viðburður frá stofnun hollvinasamtakanna fyrir 10 árum en féll niður 2020 og 2021 vegna COVID-19 faraldursins.

Dagur sjúkrahússins á Glerártorgi 2023

Starfsfólk sjúkrahússins stendur fyrir mælingu á blóðþrýstingi, súrefnismettun og púlsi. Félagsmenn í hollvinasamtökunum kynna Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri og skrá nýja félaga. Þá býðst smáfólkinu að koma með uppáhaldsleikfangið sitt í læknisskoðun. Að sjálfsögðu verður líka bangsa- og dúkkuhorn á staðnum.

Almannaheillafélag

Hollvinasamtök SAk eru almannaheillafélag og framlög til Hollvinasamtaka SAk eru frádráttarbær frá skattstofni gefenda, hvort sem um er að ræða fyrirtæki eða einstaklinga. Árgjaldið er 6.000 krónur og er það sá grunnur sem Hollvinir SAk byggja starfsemi sína á. Þar sannast hið fornkveðna að margt smátt gerir eitt stórt. Hollvinir SAk eru nú vel á þriðja þúsund talsins en markmiðið er að fjölga þeim verulega á næstu mánuðum.

Hollvinir SAk hvetja sem flesta til að leggja leið sína á Glerártorg á laugardaginn og taka virkan þátt í dagskránni.

Facebookviðburður hér.