Dag- og göngudeild geðþjónustu SAk lokar tímabundið
8. desember 2023
Dag- og göngudeild geðþjónustu lokar frá og með 11. desember 2023 til og með 12. janúar 2024 vegna endurskoðunar og umbóta á starfsemi.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1BqM546UOkb6JQktz1rCMM/72c11d1154e7352a839624cbf506b00f/_6302KY4_-_Copy.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![Loftmynd af SAk](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1BqM546UOkb6JQktz1rCMM/72c11d1154e7352a839624cbf506b00f/_6302KY4_-_Copy.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Á þessu tímabili stöðvast öll starfsemi fyrir fullorðna í þjónustu dag- og göngudeildar nema bráðastarfsemi og ákveðnir hópar.
Starfsemi BUG teymis (barna- og unglingageðteymi) verður að mestu leyti óbreytt.
Móttaka lokar ásamt símsvörun: Hægt er að koma boðum inn á deildina í gegnum tölvupóst mottakasel@sak.is.
Erindi til BUG teymis er enn fremur hægt að senda inn í gegnum tölvupóstinn mottakasel@sak.is og verður pósturinn sendur til viðkomandi meðferðaraðila.