Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Atnorth styrkir Hollvini SAk

26. október 2026

Fyrir helgi afhenti atNorth Hollvinum Sjúkrahússins á Akureyri styrk að upphæð 500.000 krónur. Styrkurinn tengist þátttöku starfsfólks SAk í Akureyrarhlaupinu í sumar, þar sem sjúkrahúsið var meðal þeirra vinnustaða sem tóku þátt í sérstakri áskorun tengdri hlaupinu.

Frá vinstri: Ragnheiður Halldórsdóttir, Arnar Árnason, Aron Ingi Gautason, Hermann Haraldsson, Hrefna Hallgrímsdóttir, Kristín Sigfúsdóttir, Konráð Gylfason og Guðjón Hauksson.

Fyrir helgi afhenti atNorth Hollvinum Sjúkrahússins á Akureyri styrk að upphæð 500.000 krónur. Styrkurinn tengist þátttöku starfsfólks SAk í Akureyrarhlaupinu í sumar, þar sem sjúkrahúsið var meðal þeirra vinnustaða sem tóku þátt í sérstakri áskorun tengdri hlaupinu. Í kjölfarið fékk SAk tækifæri til að velja góðgerðarmál sem atNorth myndi styðja og varð Hollvinafélag SAk fyrir valinu.

Markmið Hollvina Sjúkrahússins á Akureyri er að styðja og styrkja starfsemi sjúkrahússins. Tækjakaup fyrir sjúkrahúsið eru meðal mikilvægustu verkefna félagsins og hefur stuðningur þess í gegnum árin skipt miklu máli við að efla aðbúnað og þjónustu á SAk.

„Við kunnum atNorth bestu þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf. Það er jafnframt ánægjulegt að öflug þátttaka starfsfólks SAk í Akureyrarhlaupinu hafi orðið til þess að þessi styrkur skuli renna til Hollvina SAk, sem hafa um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í að styrkja starfsemi sjúkrahússins, meðal annars með stuðningi við mikilvæg tækjakaup,“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.

„Við hjá Hollvinum SAk erum afar þakklát bæði atNorth fyrir styrkinn og starfsfólki SAk fyrir þátttökuna sem gerði þetta mögulegt. Framlög sem þessi gera okkur kleift að halda áfram að styðja við mikilvæg verkefni á sjúkrahúsinu, ekki síst tækjakaup sem nýtast sjúklingum og starfsfólki til framtíðar. Jafnframt viljum við minna á að það er einfalt að gerast Hollvinur SAk. Árgjaldið er 6.000 krónur og er innheimt einu sinni á ári, í maí. Við hvetjum alla sem vilja styðja við starfsemi sjúkrahússins til að ganga til liðs við okkur,“ segir Kristín Sigfúsdóttir, ritari stjórnar Hollvina SAk.

Vilt þú gerast Hollvinur SAk? Hægt er að skrá sig í Hollvinafélagið hér: https://www.hollvinir.is/services