Fara beint í efnið

Ársfundur SAk er á morgun

18. september 2023

​Ársfundur Sjúkrahússins á Akureyri fyrir starfsárið 2022 fer fram á morgun, 19. september kl. 14, í fundarherberginu Kjarna og í streymi. Upptaka af fundinum verður aðgengileg að honum loknum.

Auglýsingamynd um ársfund 2023

Ársfundurinn er með hefðbundnu sniði en auk ávarpa heilbrigðisráðherra og forstjóra SAk verður m.a. kynning á lyfjaþjónustu SAk í höndum Jónu Valdísar Ólafsdóttur, deildarstjóra lyfjaþjónustu.

Þá hefur skapast hefð fyrir því að heiðra starfsfólk á ársfundinum og hvatningarverðlaun verða afhent.

Fundarstjóri er Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri rekstrar og klínískrar stoðþjónustu.


Streymi: us02web.zoom.us/j/85383571534

DAGSKRÁ

  • Opnun – ný myndbönd frá starfsmannaþjónustu: Komdu í lið með okkur!

  • Ávarp heilbrigðisráðherra – Willum Þór Þórsson

  • Ávarp forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri – Hildigunnur Svavarsdóttir

  • Ársreikningur Sjúkrahússins á Akureyri - Karen Sif Jónsdóttir, skrifstofa fjármála

  • Lyfjaþjónusta á SAk – uppbygging og framtíðarsýn – Jóna Valdís Ólafsdóttir, deildarstjóri lyfjaþjónustu

  • Hvatningarverðlaun

  • Hollvinir SAk – Jóhannes Bjarnason, formaður Hollvina Sjúkrahússins á Akureyri

  • Starfsfólk heiðrað – Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs

  • Fundarlok​

Léttar veitingar að fundi loknum.
FB-viðburður hér: https://fb.me/e/u4O1q8gtW

Öll velkomin!