Alþjóðlegur dagur lífeindafræðinga
15. apríl 2026
Í dag er alþjóðlegur dagur lífeindafræðinga.

Í tilefni dagsins var kaffitíminn sérlega góður.
Lífeindafræðingar starfa á SAk á rannsóknardeild, lífeðlisfræðideild og á meinafræðideild og starfa á fjölbreyttum sérsviðum við blóðmeinafræði, klíníska lífefnafræði, sýkla- og veirufræði, blóðbanka, lífeðlisfræði og meinafræði.
Hægt er að fylgjast með þeim á Instagram (rannsókn_sak) og á Facebook (rannsókn SAk).
Til hamingju með daginn lífeindafræðingar!