Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Aðgerða þörf í húsnæði dag- og göngudeildar geðdeildar

22. október 2025

Sérfræðingar frá Eflu hafa tekið sýni í húsnæði dag- og göngudeildar geðdeildar á Seli og sýna niðurstöðurnar menguð sýni vegna rakaskemmda, sem nauðsynlegt er að bregðast við.

Nú þegar er hafin vinna við þær aðgerðir sem hægt er að ráðast í án tafar s.s. grisjun, regluleg aukaþrif, skoða möguleika varðandi loftræstun, upplýsingagjöf og stuðning við skjólstæðinga og starfsfólk. Þá er einnig unnið að aðgerðaráætlun til lengri tíma.

Í þessu ferli er megináhersla lögð á að tryggja velferð skjólstæðinga og starfsfólks.

Vakni spurningar vegna þjónustu er fólk hvatt til að senda fyrirspurnir á netfangið: mottakasel@sak.is