Fara beint í efnið
Ríkiskaup Forsíða
Ríkiskaup Forsíða

Ríkiskaup

Fyrirhugað útboð á rammasamningi fyrir þjónustu iðnmeistara

15. mars 2024

Ríkiskaup, fyrir hönd rammasamningsaðila, tilkynna undirbúning að nýjum rammasamningi fyrir þjónustu iðnmeistara í tengslum við viðhald, viðbætur og endurnýjun á fasteignum.

Malmsuda_RK_Frett

Útboðið mun taka til eftirfarandi þjónustuflokka/iðngreina: 

  • Blikksmíði 

  • Málun 

  • Málmiðn 

  • Múrverk 

  • Pípulögn 

  • Rafiðn 

  • Skrúðgarðyrkja 

  • Trésmíði 

Þátttakendum verður heimilt að bjóða í einstaka hluta útboðsins, og mun útboðið ásamt samningum í kjölfarið ná til alls landsins. 

Kröfur til bjóðenda: 

  • Skráning í fyrirtækjaskrá. 

  • Trygg fjárhagsstaða.  

  • Skil á opinberum gjöldum, þ.m.t. skatt, virðisaukaskatt og lífeyrisskuldbindingar. 

  • Uppfylling allra lögboðinna krafna til starfsemi í viðkomandi iðngrein. 

Sjá nánar leiðbeiningar um þátttöku í útboðum Ríkiskaupa hér:  

Mikilvæg tilkynning til áhugasamra aðila: 

Við hvetjum alla áhugasama að fylgjast náið með á útboðsvefnum og skrá sig í áskrift til að fá tilkynningu um nýjar auglýsingar. Það er brýnt að lesa útboðsgögnin vandlega og vanda frágang þeirra gagna sem óskað er eftir, til að komast hjá því að tilboð verði vísað frá. 

Í ljósi reynslu af síðasta rammasamningi um þjónustu iðnmeistara, sem var að meðaltali 3 milljarðar án vsk á ári, sjáum við fram á spennandi og ábatasamt samstarf. 

Skil á tilboðum og fylgigögnum  

Öllum tilboðum mun verða skilað rafrænt í útboðskerfi Ríksikaupa, TendSign. Hægt er að nálgast leiðbeiningar um skráningu.  

Hvetjum aðila til að kynna sér Leiðbeiningar varðandi tilboðsgerð  og skráningu á vefsíðu Ríkiskaupa. 

Fyrirhugað er að auglýsa útboðið í apríl.

Ríkiskaup

Hafðu samband

Sími: 530 1400

Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is

Afgreiðslu­tími

Alla virka daga frá klukkan 9 til 15.

Heim­il­is­fang

Borgartúni 26, 7. hæð,
105 Reykjavík

Kennitala: 660169-4749