Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum

23. september 2026

Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja sem taka á móti nemum í vinnustaðanámi og starfsþjálfun sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Breytingar á umsóknarferli

Rafræn ferilbók forsenda styrkveitingar.

Tenging milli umsóknarkerfis Vinnustaðanámssjóðs og rafrænnar ferilbókar er orðin sjálfvirk þannig að umsækjendur þurfa ekki sjálfir að setja ferilbókina inn.

Sótt verður um styrki vegna vinnustaðanáms á 12 mánaða tímabilinu nóvember 2025 til október 2026.

Mælt er með að vinnustaðir undirbúi umsóknir tímanlega.

Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2026 kl. 15:00.

Til að einfalda umsóknarferlið er fyrirtækjum bent á að:

  • ganga úr skugga um að vinnustaðanámssamningar í rafrænni ferilbók séu fullfrágengnir,

  • stofna umsókn og skrá nemendur þegar opnað verður fyrir umsóknir,

  • safna saman nauðsynlegum fylgigögnum, svo sem launaseðlum eða öðrum gögnum sem staðfesta umsótt vinnustaðanám, áður en umsóknarfrestur rennur út.

Um Vinnustaðanámssjóð

Markmið Vinnustaðanámssjóðs er að hvetja fyrirtæki til að taka við nemendum í vinnustaðanám og gera þeim kleift að ljúka þeim verklega hluta starfsnáms sem krafist er samkvæmt námskrá framhaldsskóla.

Nánari upplýsingar:
Tölvupóstfang: vinnustadanamssjodur@rannis.is
Sími: 515 5833/ 515 5843