Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum

5. júní 2026

Auglýst er eftir umsóknum um styrki vegna vinnustaðanáms nema á tímabilinu 1. nóvember 2025 til 31. október 2026. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2026 kl. 15:00.

Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla. Forsenda styrkveitingar er að fyrir liggi staðfestur vinnustaðanámssamningur sem stofnaður hefur verið í rafrænni ferilbók nemandans.

Vinnustaðir eru hvattir til að kanna hvort nemar á starfssamningi hjá þeim séu með gilda rafræna ferilbók.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknum skal skilað á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar:
Tölvupóstfang: vinnustadanamssjodur@rannis.is
Sími: 515 5833/ 515 5843