Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð
7. ágúst 2026
Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum Sproti, Vöxtur og Markaður. Umsóknarfrestur rennur út 15. september 2026 kl. 15:00.

Sproti er fyrir fyrirtæki sem eru fimm ára og yngri og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á frumstigi. Hægt er að sækja um þótt fyrirtæki sé óstofnað.
Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja verkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar.
Markaður er veitir styrki til markaðssetningar tengd þróun til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Umsóknarfrestur er 15. september 2026, kl. 15:00 og sótt er um rafrænt í umsóknarkerfi Rannís
Viðvera starfsfólks Tækniþróunarsjóðs:
Starfsfólk Tækniþróunarsjóðs verður með opna viðtalstíma milli 10:00 og 14:30 í Engjarós í Grósku á þriðjudögum og fimmtudögum frá 11. ágúst til og með 10. september.
Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00-12:00 í síma 515 5800
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins: