Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Yfir tíu þúsund nemendur hafa lokið stöðu- og framvinduprófum

6. mars 2026

Stöðu- og framvindupróf halda áfram í grunnskólum landsins. Nú í lok fyrstu viku fyrirlagnar hafa 115 skólar lagt prófin fyrir og rúmlega 10.000 nemendur lokið prófi í stærðfræði eða lesskilningi.

Skólar hafa í heildina fjórar vikur til að leggja prófin fyrir og því er áfram gott svigrúm fyrir þá skóla sem eiga eftir að leggja prófin fyrir á næstu dögum og vikum.

Samstarf Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu við skóla um allt land hefur verið mikið í vikunni og starfsfólk miðstöðvarinnar hefur verið í nánu sambandi við skólastjórnendur og kennara til að styðja við fyrirlögn prófanna.

„Við viljum þakka skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki skólanna fyrir gott samstarf í vikunni,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. „Það hefur verið mikill vilji til að finna lausnir og vinna saman þannig að fyrirlögn prófanna gangi sem best fyrir sig. Fyrir okkur hjá MMS hefur verið afar ánægjulegt að eiga svona náið samstarf við skóla um allt land.“

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280