Viltu vera MEMM?
12. maí 2026
MEMM er þróunarverkefni þar sem unnið er að því að efla menntun og þjónustu fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Hluti af verkefninu er MEMM-vefurinn þar sem kennarar og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi geta nálgast fjölbreytt og hagnýt verkfæri til að styðja við inngildandi starf.

Markmið MEMM eru meðal annars að:
tryggja virka þátttöku allra barna og ungmenna og aðgengi að gæðamenntun óháð tungumála- og menningarbakgrunni
stuðla að samræmdu verklagi um móttöku, menntun og þjónustu
þróa öfluga ráðgjöf, námsgögn og verkfæri fyrir inngildandi skóla- og frístundastarf
Á MEMM-vefnum er efni flokkað út frá þremur meginstoðum verkefnisins:
Menntun
Undir liðnum menntun er að finna efni sem tengist menningarnæmum kennslu- og starfsháttum með áherslu á máltöku og þróun tungumáls.
Móttaka
Undir liðnum móttaka er fjallað um mikilvægi markvissrar móttöku barna og ungmenna, mat á stöðu þeirra og styrkleikum, sem og gagnvirkt samstarf við fjölskyldur.
Menning
Undir liðnum menning er safnað saman verkfærum og stuðningsefni sem styður við örugga, inngildandi menningu og jákvæð samskipti í starfi með öllum börnum og ungmennum.
MEMM-vefurinn er lifandi vettvangur sem er í stöðugri þróun og reglulega bætast við ný verkfæri, fræðsla og stuðningsefni. Það er því tilvalið að fylgjast með því sem þar er í boði og nýta efnið í daglegu starfi.
Sjá nánar á MEMM-vefnum.