Útgáfufréttir: Halló heimur 4
27. ágúst 2026
Fjórða og síðasta bókin í „Halló heimur“ seríunni er komin út rafrænt. Í Halló heimur 4 halda grúskararnir áfram að kanna samfélagið og náttúruna með fjölbreyttum viðfangsefnum sem hvetja til umræðna, rannsókna og skapandi vinnu.

Grúskað um samfélagið og náttúruna
Í Halló heimur 4 halda grúskararnir áfram að rannsaka heiminn í kringum sig og takast á við fjölbreytt viðfangsefni úr samfélags- og náttúrugreinum.
Nemendur fræðast meðal annars um hvernig landið okkar varð til og náttúruna sem mótar það, beina sjónum út í heim og kynnast heimsálfunum. Einnig er fjallað um kynþroska og samskipti og nemendur hvattir til að velta fyrir sér, ræða saman og tengja efnið við eigin reynslu og nærumhverfi.
Líkt og í fyrri bókum seríunnar er lögð áhersla á fjölbreyttar leiðir til náms. Í efninu má meðal annars finna hugmyndir að föndri, spilum, umræðum, tilraunum og verkefnum sem ætlað er að vekja forvitni og ýta undir rannsóknir og skapandi hugsun.
Nemendabók, verkefnabók og kennsluleiðbeiningar
Námsefnið samanstendur af nemendabók, verkefnabók og kennsluleiðbeiningum sem vinna saman að viðfangsefnum bókarinnar.
Nemendabókin er ríkulega myndskreytt með teikningum og ljósmyndum sem styðja við textann og viðfangsefnin. Á hverri opnu eru dregin fram þrjú ný orð sem hægt er að vinna sérstaklega með til að efla orðaforða nemenda. Aftast í bókinni eru einfaldar útskýringar á orðunum og hverjum kafla lýkur með hugmyndum að umræðum og verkefnum.
Í verkefnabókinni fá nemendur tækifæri til að vinna áfram með viðfangsefni nemendabókarinnar með fjölbreyttum æfingum og verkefnum.
Kennsluleiðbeiningarnar eru aðgengilegar á námsefnisvef og þar má meðal annars finna hugmyndir og ítarefni til að styðja við kennsluna, auk myndabanka sem tengist námsefninu.
Halló heimur 4 er nú aðgengileg rafrænt á námsefnisvef.
Höfundar eru Jónella Sigurjónsdóttir og Unnur María Sólmundsdóttir.
Myndhöfundar eru Iðunn Arna og Bergrún Íris Sævardóttir.