Upplýsingar vegna fyrirlagnar stöðu- og framvinduprófa mánudaginn 2. mars
2. mars 2026
Uppfært kl. 12:45: Staða sem upp kom vegna hægagangs í rafrænu prófakerfi við upphaf fyrirlagnar í morgun hefur nú verið leyst. Málið var lagfært um hádegisbil og kerfið er komið í eðlilegt horf.
Hægagangur kom upp við upphaf fyrirlagnar stöðu- og framvinduprófa þegar margir notendur fóru inn á sama tíma. Vel gekk að greina orsökina og var strax hafist handa við að vinna að lausn í samstarfi við rekstraraðila prófakerfisins.
Fyrirlagnarglugginn er fjórar vikur og því áfram gott svigrúm til að velja hentugan tíma til fyrirlagnar.
MMS þakkar skólum fyrir samstarfið og þann skilning sem sýndur var meðan unnið var að úrlausn málsins.