Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Tvær tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna

20. mars 2026

Við hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu erum stolt af því að vera hluti af tveimur tilnefningum til Íslensku vefverðlaunanna sem Samtök vefiðnaðarins standa fyrir.

Við erum tilnefnd í flokknum Innri vefur ársins fyrir Nemendagrunn, sem var þróaður í samstarfi við Júní. Nemendagrunnur er sameiginlegur gagnagrunnur fyrir íslenskt menntakerfi þar sem gögn fylgja barni alla skólagöngu þess. Markmið hans er að bæta yfirsýn, styðja við samræmdar mælingar og skapa forsendur fyrir gagnadrifinni þróun skólastarfs um land allt.

Einnig er vefurinn Verður heimurinn betri?, sem unnin var í samstarfi við 14islands, tilnefndur í flokknum Samfélagsvefur ársins. Vefurinn nýtist sem kennsluverkfæri þar sem ungt fólk getur kynnt sér þróun heimsins með gagnvirkum hætti, meðal annars í gegnum staðreyndaspjöld, myndbönd og þátttöku í umræðu um málefni sem snerta framtíðina.

Vefurinn styður við efni samnefndrar bókar sem hefur verið gefin út á íslensku þrisvar sinnum. Útgáfa og prentun bókarinnar var unnin af Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í samstarfi við okkur, með stuðningi utanríkisráðuneytisins. Vefurinn sjálfur var styrktur af mennta- og barnamálaráðuneytinu og unninn í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna og okkur. Upprunalega var vefurinn þróaður á sænsku af 14islands fyrir Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna og hefur hlotið viðurkenningu þar í landi.


Tilnefningarnar eru mikilvæg viðurkenning á því starfi sem unnið er að við þróun stafrænnar þjónustu fyrir menntakerfið og samfélagið í heild. Við erum stolt af verkefnunum og þakklát fyrir það samstarf sem að þeim koma.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280