Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Tryggjum öruggt og ofbeldislaust íþrótta- og æskulýðsstarf í sumar

30. maí 2024

Í sumar eru ýmsar samkomur, viðburðir og mannamót þar sem börn koma að. Því er mikilvægt að öll þau sem koma að skipulagningu og framkvæmd íþrótta- og æskulýðsstarfs séu upplýst um það til hvers er ætlast af þeim varðandi hegðun og framkomu. Þá er einnig mikilvægt að þekkja einkenni ofbeldis og vita hvert skal leita ef grunur vaknar um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi.

Tryggjum öruggt og ofbeldislaust íþrótta-og-æskulýðsstarf mynd

Barna- og fjölskyldustofa, Jafnréttisstofa, lögreglan, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Neyðarlínan, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs hafa því unnið upplýsingabréf til íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Í bréfinu eru hlekkir á efni sem inniheldur fræðslu gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, gátlista varðandi nýráðningu starfsfólks og sjálfboðaliða ásamt leiðbeiningum varðandi öflun upplýsinga úr sakaskrá. Þar er einnig að finna hlekk á samræmda viðbragðsáætlun íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Ætíð á að tilkynna til 112, og/eða barnaverndarþjónustu og lögreglu ef grunur vaknar um brot gegn barni.

Tryggjum öruggt og ofbeldislaust íþrótta- og æskulýðsstarf í sumar - plakat
Ensuring Safety in Sports Clubs and Youth Associations - poster. (English)

Nánari upplýsingar veita:

Kristín Skjaldardóttir, Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs, samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is

Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, olof.asta.farestveit@bofs.is

Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, forvarnarfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, alfa@samband.is

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@mms.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280