Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Sumarlestrarspretturinn 2026 er hafinn

20. maí 2026

Nú er Sumarlestur 2026 hafinn og býður börnum um allt land að taka þátt í skemmtilegu lestrarævintýri í sumar. Í ár þarf Gúndi geithafur hjálp við að finna grænt beitiland og hvetur öll börn á aldrinum 6–12 ára til að taka þátt í grasleitinni miklu með því að lesa sem mest í sumar.

Í dag miðvikudaginn 20. maí opnar vefurinn sumarlestur.is og þar með hefst formlega sumarlestur barna um allt land.

Lesið, safnið og leysið þrautir

Börn sem taka þátt fá sérstakt vegabréf á almenningsbókasafni þar sem þau geta safnað stimplum eða límmiðum eftir því sem lesturinn vindur fram. Einnig fylgja happamiðar og fjölbreytt þrautablöð sem gera lesturinn enn skemmtilegri.

Til að taka þátt þurfa börnin að:

  • heimsækja almenningsbókasafn

  • sækja sér vegabréf

  • og hefja lestur!

Markmiðið er að efla lestrargleði barna yfir sumarið og skapa jákvæða upplifun í kringum lestur og bókasöfn.

Nýr heimur eftir Blæ Guðmundsdóttur

Í ár skapar Blær Guðmundsdóttir, mynd- og rithöfundur, nýjan og lifandi heim fyrir unga lesendur þar sem Gúndi geithafur leiðir þátttakendur í gegnum sumarið.

Sumarlesturinn er samstarfsverkefni fjölmargra bókasafna, stofnana og félagasamtaka. Undirbúningur verkefnisins er í höndum starfsfólks Borgarbókasafnsins, Bókasafns Kópavogs og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Bókasöfn, skólar og önnur sem starfa með börnum eru hvött til að kynna verkefnið og hvetja börn til þátttöku í sumarlestrinum.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280