Stuttmyndir eftir 12 ára snillinga sýndar á stóra tjaldinu
28. október 2025
Sexan stuttmyndasamkeppni tekur þátt í Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð en þá verður í fyrsta skipti hægt að sjá allar sigurmyndir Sexunnar frá upphafi á stóra tjaldinu. Þessi merki viðburðir verður í Bíó Paradís, laugardaginn 2. nóvember kl. 13.

Við hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu erum hluti af breiðri fylkingu samstarfsaðila sem standa að Sexunni. Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð og Sexan hafa tekið höndum saman og gert ungu kvikmyndagerðarfólki kleift að sýna og sjá stuttmyndirnar sínar á stóra tjaldinu í kvikmyndahúsi! Allar myndirnar eru líka aðgengilegar í streymisveitu Bíóparadísar.
Laugardaginn 2. nóvember kl. 13 munu börnum og fullorðnum gefast kostur á að sjá allar sigurmyndir Sexunnar frá upphafi, auk þess að taka þátt í örnámskeiði í stuttmyndagerð sem verður stýrt af Örnu Magneu Danks, leikkonu og fyrrum formanni dómnefndar Sexunnar.
Komdu á laugardag og sjáðu myndir eftir unga snillinga á stóra tjaldinu í Bíó Paradís - hlökkum til að sjá þig!