Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Stöðu- og framvindupróf hafin um land allt

4. mars 2026

Stöðu- og framvindupróf eru nú hafin í grunnskólum landsins. Þegar hafa um 80 skólar lagt prófin fyrir og meira en 3000 nemendur þreytt stærðfræði- og lesskilningspróf á fyrstu dögum prófanna.

Framkvæmdin gengur vel og þátttaka er góð. Skólar hafa fjórar vikur til að leggja prófin fyrir sem tryggir skólum svigrúm og sveigjanleika.

„Þetta er mikilvægur áfangi og við fögnum því að vera komin af stað,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. „Markmiðið er að prófin styðji við markvissa eftirfylgni og gefi bæði nemendum og kennurum gagnlegar upplýsingar um stöðu námsins.“

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280