Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Sögur - tilnefningar barnanna kynntar

12. maí 2026

Sögur er samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði að efla sköpun, frásagnargleði og þátttöku barna í menningu og listum. Tilnefningar verkefnisins hafa nú verið kynntar og fer verðlaunahátíðin fram 30. maí. Hátíðinni verður sjónvarpað á RÚV klukkan 19:50 þar sem verðlaun verða veitt fyrir smásögur, lög og texta, leikritahandrit og stuttmyndahandrit eftir börn víðs vegar af landinu.

Tilnefningar í verkefninu Sögur voru kynntar nýverið en verkefnið er samstarfsverkefni sjö stofnana sem hefur það að markmiði að efla sköpun, frásagnargleði og þátttöku barna í menningu og listum. Fjallað var um tilnefningarnar í Morgunblaðinu.

Verðlaunahátíð sýnd á RÚV

Verðlaunahátíðin Sögur fer fram 30. maí og verður sýnd á RÚV klukkan 19:50. Þar verða verðlaun veitt í flokki smásagna, laga og texta, leikritahandrita og stuttmyndahandrita. Á hátíðinni fá börn sem eiga sigurverk verðlaunagripinn Svaninn, verðlaunagrip Sagna.

Lög, leikrit og stuttmyndir unnin áfram

Þrjú lög eftir börn voru valin og útsett af Ingvari Alfreðssyni. Lögin verða flutt á verðlaunahátíðinni og gefin út á Spotify í kjölfarið:

  • Skólavinur

    eftir Auði Helgu Aradóttur Einarsdóttur, flutt af Klöru Elías

  • Náttfatapartý

    eftir Evu Máneyju Ingibergsdóttur og Söru Lovísu Gunnarsdóttur, flutt af Jóhönnu Guðrúnu

  • Förum út í geim

    eftir Ómar Elí Fannarsson, flutt af VÆB

Tvö leikritahandrit voru unnin áfram og sett upp af Borgarleikhúsinu með nemendum á lokaári leiklistarskóla leikhússins:

  • Torgið

    eftir Ásgeir Atla Rúnarsson

  • Geimverur í heimsókn!

    eftir Axel Frey Garðarsson, Hilmar Birkisson, Hrein Atla Gunnarsson og Sævar Hrafn Garðarsson

Þrjú stuttmyndahandrit voru einnig þróuð áfram og verða aðgengileg á vef KrakkaRÚV frá 28. maí:

  • Svartholið

    eftir Móeiði Ronju Davíðsdóttur

  • Gleraugun

    eftir Þórunni Obbu Gunnarsdóttur og Guðfinnu Kristnýju Helgadóttur

  • Týnda mjólkin

    eftir Karítas Magnúsdóttur

Risastórar smásögur gefnar út af MMS

Sautján smásögur barna verða gefnar út í bókinni Risastórar smásögur. Rithöfundurinn Gunnar Helgason ritstýrði bókinni í samvinnu við höfunda. Bókin verður gefin út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þann 1. júní, bæði á prenti og sem rafbók. Prentuðu eintökunum verður dreift í alla grunnskóla landsins á haustdögum. Smásögurnar verða einnig teknar upp á RÚV og lesnar af nemendum úr Leiklistarskóla Borgarleikhússins og leiklistarnemum á Akureyri. Þær verða aðgengilegar til hlustunar á Sarpi RÚV í haust.

Smásögurnar sautján

  • Emma, ísbjörnin og fjólubláa skóflan

    eftir Valdísi Eir Óskarsdóttur

  • Ferðin til Kólumbusareyju

    eftir Ingileif Teitsdóttur

  • Hinn mikli íkorni

    eftir Rebekku Ástu Hrólfsdóttur
    (myndhöfundur: Rakel Eva Hrólfsdóttir)

  • Hryssan og folaldið

    eftir Heiðnýju Jónasdóttur

  • Hvíti bjarminn og kristallinn

    eftir Ingu Modesta Samuel

  • Jón hinn mikli

    eftir Jón Anton Guðmundsson

  • Lísa og magnaða geimveran

    eftir Ísabel Talíu Cambray Alexdóttur

  • Nefhildur

    eftir Árdísi Heklu Pétursdóttur

  • Nistið

    eftir Lovísu Hind Þorsteinsdóttur

  • Ofurálfarnir

    eftir Hönnu Júlíu Lorenz

  • Saga úr sólkerfinu

    eftir Sunnu Margréti Sigurðardóttur

  • Skrýtna jólagjöfin

    eftir Tinnu Karenu Jóhannesdóttur
    (myndhöfundur: Elín Sóley Sande e Castro)

  • Spegillinn

    eftir Jóhönnu Heiðrúnu Ágústsdóttur

  • Sóley verður norn

    eftir Míu Eldey Einarsdóttur

  • Súrt nammi

    eftir Sesselju Lóa Þöll Halldórsdóttur

  • Tinntinn og ferðin til Ægrantíu

    eftir Ragnhildi Söru O'Brien

  • Töfraboltinn

    eftir Berglindi Svönu Helgadóttur
    (myndhöfundur: Benjamín Aron Árnason)

Samstarfsverkefni

Sögur er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins, Borgarleikhússins, Bókmenntaborgar UNESCO, KrakkaRÚV, Listar fyrir alla, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands og Barnamenningarhátíð Reykjavíkur.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280