Sögur fagna tíu ára afmæli - við leitum að hugmyndum barna um allt land
28. október 2026
Sköpunar- og barnamenningarverkefnið Sögur fagnar tíu ára afmæli í ár og leitar enn á ný að hugmyndum frá börnum um allt land. Nemendur í 3.–7. bekk geta sent inn eigin verk og fengið tækifæri til að sjá hugmyndir sínar verða að veruleika. Opið er fyrir innsendingar til 15. nóvember 2026.

Sögur eru samstarfsverkefni sjö stofnana, þar á meðal Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS). Markmið verkefnisins er að hvetja börn til sköpunar, vekja athygli á verkum þeirra og gefa þeim rödd í íslenskri barnamenningu. Börn fá þannig bæði tækifæri til að skapa sjálf og láta í ljós hvað þeim finnst best af því menningarefni sem er í boði fyrir þau.
Frá hugmynd að veruleika
Nemendur geta sent inn lög og texta, leikritahandrit, listaverk, smásögur og stuttmyndahandrit. Valin verk eru þróuð áfram í samstarfi við börnin og fagfólk á sviði lista og menningar.
Leikrit geta ratað á svið Borgarleikhússins, listaverk orðið að veruleika með aðstoð Listasafns Reykjavíkur, smásögur birst í bókaflokknum RISAstórar smásögur og stuttmyndir verið framleiddar hjá KrakkaRÚV. Lög fá einnig nýjan búning í höndum tónlistarfólks.
Sköpun og tjáning í skólastarfi
Sögur gefa kennurum tækifæri til að vinna með sköpun, ritun, tjáningu, myndlist og tónlist í skólastarfi. Verkefnið getur nýst til að efla sköpunargleði nemenda og gefa fjölbreyttum hæfileikum þeirra rými.
Á vef Sagna má finna leiðbeiningar, kennslumyndbönd og verkefni sem styðja við hugmyndavinnu og sköpun nemenda.
Kennarar geta einnig nýtt námsefni MMS, svo sem Ritunarvefinn, Ritunarrammann á Læsisvefnum og námsefni um skrift.
Opið fyrir innsendingar til 15. nóvember
Nú er opið fyrir innsendingar í tíunda sinn. Kennarar og skólar eru hvattir til að kynna verkefnið fyrir nemendum í 3.–7. bekk og styðja þá við að koma hugmyndum sínum á framfæri.
Innsendingarfrestur er til 15. nóvember 2026.