Skrift 3 – ný skriftarbók fyrir 3.–4. bekk
18. september 2026
Bókin Skrift 3 er komin úr prentun. Markmið hennar er að auka læsileika skriftar og efla sjálfvirka skriftarfimi nemenda í 3.–4. bekk.

Skrift 3 er framhald af Skrift 2b. Í bókinni eru tengingar út frá stafafjölskyldum rifjaðar upp og nemendur þjálfa skrift með ritun samfellds texta. Verkefnin tengjast meðal annars réttritun og greinarmerkjasetningu. Þar er einnig að finna skapandi ritunarverkefni og skemmtilegar þrautir.
Stuðningur við kennsluna
Í kennsluleiðbeiningum með Skrift 3 eru tillögur að innlögnum og kennsluáætlun. Þar er meðal annars fjallað um markmið, hjálpargögn og námsmat.
Kennarar geta einnig nýtt Skriftarsmiðjuna til að útbúa fjölbreytt þjálfunarefni í skrift. Þar er hægt að velja leturstærð eftir þörfum og útbúa verkefni sem henta hverjum nemanda.
Fleira efni á Skriftarvefnum
Skriftarvefurinn er hagnýtur vefur þar sem finna má allt útgefið efni í skrift. Á vefnum er meðal annars stöðumat í skrift, matsrammi fyrir kennara og góð ráð fyrir foreldra sem vilja þjálfa skrift með börnum sínum heima.
Höfundur Skriftar 3 er Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir og myndhöfundur er Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir.