Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Skrift 2b er komin út

10. mars 2026

Nú er Skrift 2b komin út ásamt kennsluleiðbeiningum. Efnið er ætlað nemendum í 2.- 3. bekk og lögð áhersla á að vinna áfram með tengingar í gegnum stafafjölskyldur en auk þess leitast við að samþætta skrift, stafsetningu og ritun.

Í Skrift 2b er áfram unnið með tengingar en jafnframt leitast við að samþætta skrift, stafsetningu og ritun í gegnum merkingarbær orð og texta. Nemendur æfa réttar tengingar í hálftengdri ítalíuskrift og kynnast um leið algengum orðum og einföldum stafsetningarreglum.

Megináhersla í skriftarnámsefni á þrepi tvö er að nemendur:

  • beiti réttum stafdrætti

  • tileinki sér réttar tengingar

  • þjálfi skrift samhliða stafsetningu og ritun

Hægt er að skoða Skrift 2b hér:
https://mms.is/namsefni/skrift-2b-rafbok

Í kennsluleiðbeiningunum með Skrift 2a og 2b er farið yfir helstu hugtök sem kennarar þurfa að hafa á valdi sínu í skriftarkennslu. Þar er einnig að finna yfirlitstöflu sem sýnir hvernig tengja má hvern bókstaf ásamt sýnidæmum. Auk þess er lögð fram tillaga að kennsluáætlun þar sem fjallað er um markmið, innlögn, hjálpargögn og námsmat.

Kennsluleiðbeiningarnar má nálgast hér:
https://mms.is/namsefni/skrift-2a-og-skrift-2b-kennsluleidbeiningar-rafbok

Áhugaverð umfjöllun um skriftarkennslu í Námsvarpinu

Í þættinum fjallar Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, höfundur efnisins, um skriftarkennslu og nýtt skriftarnámsefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Hlustaðu á þáttinn hér.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280