Óskað eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna Dags gegn einelti
18. september 2026
Fagráð eineltismála óskar eftir tilnefningum á einstaklingum, hópum eða verkefnum sem hafa stuðlað að góðu og fyrirbyggjandi starfi gegn einelti. Tilnefningar þurfa að berast fyrir 21. október. Dagur gegn einelti ber upp á sunnudag í ár og verður því haldinn hátíðlegur föstudaginn 6. nóvember 2026.

Í tilefni dagsins eru skólar og aðrir sem vinna með börnum og ungmennum hvattir til að vekja sérstaka athygli á mikilvægi góðra samskipta, inngildingar og fyrirbyggjandi starfs gegn einelti.
Tilnefningar til hvatningarverðlauna
Tilnefna má einstakling, hóp eða verkefni sem hefur unnið gott fyrirbyggjandi starf gegn einelti.
Í tilnefningunni þarf að koma fram:
hver eða hvað er tilnefnt
stuttur rökstuðningur fyrir tilnefningunni
nafn og samskiptaupplýsingar þess sem sendir tilnefninguna
Dómnefnd á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu fer yfir tilnefningarnar og velur verðlaunahafa. Hvatningarverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn föstudaginn 6. nóvember.
Tilnefningarfrestur er til og með miðvikudeginum 21. október 2026.
Tilnefningar skal senda á netfangið fagrad@midstodmenntunar.is.
Við hvetjum ykkur til að koma upplýsingunum áfram innan ykkar tengslanets og vekja athygli á þeim einstaklingum og verkefnum sem hafa unnið gott fyrirbyggjandi starf gegn einelti.