Orðarún
6. nóvember 2026
Tekin hefur verið ákvörðun um að afskrifa lesskilningsprófið Orðarún þar sem það er komið til ára sinna.

Skólar eru þess í stað hvattir til að leggja fyrir nýtt stöðu- og framvindupróf Matsferils fyrir 4.-10. bekk. Prófið er staðlað og veitir upplýsingar um stöðu lesskilnings nemenda miðað við jafnaldra á landsvísu. Hægt verður að leggja lesskilningsprófið fyrir 22. febrúar – 19. mars á næsta ári (2027).
Ef spurningar vakna má hafa samband við okkur á hjalp@midstodmenntunar.is eða í síma 514-7500.