Opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
19. maí 2026
Nú er opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á framúrskarandi skóla- og frístundastarfi og efla umræðu um menntaumbætur í íslensku samfélagi.

Íslensku menntaverðlaunin eru samstarfsverkefni embættis forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytis, innviðaráðuneytis, Samtaka iðnaðarins, Félags um menntarannsóknir, Grunns - félags stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Kennarasambands Íslands, Listaháskóla Íslands, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka áhugafólks um skólaþróun.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu starfi í skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbóta. Verðlaunin eru veitt árlega í fimm flokkum:
A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Verðlaun eru veitt skóla eða annarri menntastofnun sem stuðlað hefur að framúrskarandi menntaumbótum.
B. Framúrskarandi kennari
Verðlaun eru veitt kennara sem hefur lagt fram framúrskarandi framlag til menntaumbóta.
C. Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaun eru veitt þróunarverkefni sem uppfyllir metnaðarfull gæðaviðmið um markmið, framkvæmd, mat og miðlun og hefur skýrt mennta- og uppeldislegt gildi.
D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Verðlaun eru veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla eða menntastofnun fyrir framúrskarandi framlag til iðn- eða verkmenntunar.
E. Hvatningarverðlaun
Hvatningarverðlaun eru veitt einstaklingi, hópi eða samtökum sem hafa stuðlað að framúrskarandi menntaumbótum.
Hægt að senda inn tillögur til 1. júní
Tillögur að tilnefningum skulu hafa borist fyrir 1. júní 2026.
Viðurkenningarráð velur þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki sem kynntar verða á alþjóðadegi kennara 5. október. Verðlaunin verða síðan afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvember.
Hægt er að senda inn tillögur og lesa nánar um verðlaunin á vef Samtaka áhugafólks um skólaþróun:
Íslensku menntaverðlaunin
Einnig má senda tillögur í pósti á:
Íslensku menntaverðlaunin
hjá Ingvari Sigurgeirssyni
Sóltúni 16
105 Reykjavík
Merkið umslagið: Íslensku menntaverðlaunin
Saga verðlaunanna
Ólafur Ragnar Grímsson stofnaði til Íslensku menntaverðlaunanna og voru þau veitt á árunum 2005–2011. Verðlaunin lögðust af í kjölfar efnahagshrunsins en voru endurreist árið 2020. Við endurreisnina lagði embætti forseta Íslands til gögn tengd verðlaununum, meðal annars merki þeirra og hönnun verðlaunagripa.