Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Ör­uggt íþrótta- og æsku­lýðs­starf í sum­ar

12. júní 2025

Í sumar taka mörg börn þátt í viðburðum og æskulýðsstarfi víða um land. Mikilvægt er að þau sem koma að því að skipuleggja og framkvæma slíkt starf séu meðvituð um ábyrgð sína, þekki einkenni ofbeldis og viti hvert skal leita ef grunur vaknar um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi.

Samstarfshópur á vegum Barna- og fjölskyldustofu, Embættis landlæknis, Heimili og skóla, Jafnréttisstofu, lögreglunnar, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Neyðarlínunnar, SAFT – Fjölmiðlanefndar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur tekið saman gagnlegt upplýsingabréf.

Í bréfinu má finna:

  • fræðsluefni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni

  • gátlista fyrir ráðningar

  • leiðbeiningar um öflun upplýsinga úr sakaskrá

  • og samræmda viðbragðsáætlun æskulýðsstarfs

Bréf á íslensku

Bréf á ensku

Ef grunur vaknar um brot gegn barni skal ávallt tilkynna til 112, barnaverndar og/eða lögreglu.

Nánari upplýsingar veita:

Kristín Skjaldardóttir – samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir – alfa@samband.is
Barna- og fjölskyldustofa – bofs@bofs.is

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280