Nýtt námsefni: Einmitt! Lærum íslensku 1B og 1C
13. maí 2026
Nýtt námsefni fyrir íslensku sem annað tungumál hefur verið gefið út hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Einmitt! Lærum íslensku 1B og 1C eru framhald af Einmitt! Lærum íslensku 1A og ætlaðar unglingum sem læra íslensku sem annað tungumál á fyrsta hæfnistigi.

Námsefnið er grunnefni í ÍSAT og byggir á hæfniviðmiðum úr aðalnámskrá grunnskóla.
Með námsefninu er hægt að þjálfa öll hæfnisvið tungumálanáms:
hlustun
tal
ritun
lestur
Einnig eru málfræðikaflar bæði í lesbók og verkefnabók.
Efnið samanstendur af:
lesbók
verkefnabók
hlustunarefni
hljóðbók
kennsluleiðbeiningum á vef
Höfundur efnisins er Heiðrún Ólöf Jónsdóttir og myndhöfundur er Böðvar Leós.