Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Nýtt fræðsluefni hjálpar skólum að takast á við stafrænt ofbeldi

6. október 2026

Nýtt fræðsluefni um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna verður birt í áföngum á stoppofbeldi.mms.is í október. Efnið er ætlað efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum og á að auðvelda börnum, ungmennum og fullorðnum að þekkja stafrænt ofbeldi, ræða það og vita hvernig bregðast má við.

Fræðslan er hluti af vitundarvakningu ríkislögreglustjóra og lögregluembættanna í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) og fleiri aðila. Markmiðið er að fyrirbyggja stafrænt ofbeldi og styrkja fagfólk, foreldra, börn og ungmenni í að takast á við aðstæður sem geta komið upp í stafrænum samskiptum.

Nýtt efni í hverri viku

Í hverri viku í október verður nýr fræðslupakki birtur á stoppofbeldi.mms.is. Með hverjum pakka fylgir myndband og efni sem hægt er að nýta í fræðslu og samtali með ungmennum.

Fjallað verður um:

  • deilingu nektarmyndefnis og kynlífskúgun

  • neteinelti

  • gervigreind og djúpfalsanir

  • stafrænt öryggi í ungum parasamböndum

Fleiri verkfæri og fræðsluefni fyrir fagfólk og foreldra bætast við á næstu vikum. Samfélagslögreglan mun einnig fylgja efninu eftir í samstarfi við skóla og frístundastarf í lögregluumdæmunum.

Stafrænt ofbeldi er hluti af veruleika margra barna

Tölur sýna mikilvægi þess að börn og ungmenni fái fræðslu og stuðning í stafrænum samskiptum.

Samkvæmt Íslensku æskulýðsrannsókninni 2025 hafa 30% nemenda í 10. bekk verið beðin um að senda af sér nektarmyndir. Hlutfallið er 45% meðal stúlkna og 15% meðal drengja. Þá hafa 38% nemenda í 10. bekk fengið óumbeðin klámfengin skilaboð.

Í skýrslu ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot á fyrri hluta ársins 2026 kemur jafnframt fram að lögreglu hafi verið tilkynnt um 93 brot vegna kynferðislegrar áreitni og stafrænna kynferðisbrota. Það er 60% fjölgun frá sama tímabili árið áður. Um helmingur brotaþola í þeim kynferðisbrotum sem skýrslan nær til var undir 18 ára aldri.

Samstarf um forvarnir

Vitundarvakningin er styrkt af Netöryggissjóði Eyvarar og tengist aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum 2025–2026.

Auk MMS taka þátt Barna- og fjölskyldustofa, Embætti landlæknis, Netvís hjá Fjölmiðlanefnd, Heimili og skóli, Kennarasamband Íslands, Neyðarlínan, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs og Taktu skrefið.

Hvert er hægt að leita?

Börn og ungmenni sem verða fyrir stafrænu ofbeldi þurfa ekki að standa ein í slíkum aðstæðum. Fullorðnir sem hafa áhyggjur af barni geta einnig leitað eftir aðstoð og ráðgjöf.

Í neyð skal hafa samband við 112. Þau sem vilja tala við einhvern geta hringt í Hjálparsíma Rauða krossins, 1717.

Skoða fræðsluefni um stafrænt ofbeldi á stoppofbeldi.mms.is

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280