Nýr skriftarvefur MMS er kominn í loftið
19. nóvember 2025
Skriftarvefurinn er hagnýtt safn fjölbreyttra verkfæra til skriftarkennslu.

Á vefnum má finna nýtt námsefni í skrift, leiðir til að meta skrift, handbók um skriftarkennslu en síðast en ekki síst Skriftarsmiðjuna þar sem hægt er að útbúa einstaklingsmiðað þjálfunarefni fyrir nemendur. Þar með er ekki allt upp talið og eru kennarar hvattir til að kíkja við á Skriftarvefnum.