Norræn ráðstefna um fjöltyngi og inngildingu haldin á Íslandi
22. október 2026
Norræn ráðstefna samstarfsnetsins FLIN (Flerspråkighet i Norden) fór fram á Íslandi dagana 23.-25. september 2026 undir yfirskriftinni Samstarf í þágu inngildingar (e. Collaboration for Inclusion). Þetta var í fyrsta sinn sem ráðstefnan var haldin hér á landi. Við hjá MMS stóðum að skipulagningu hennar ásamt Háskóla Íslands og Reykjavíkurborg, með styrk frá Nordplus.

Í lok ráðstefnunnar var farið í menningarferð um Reykjanes
Á ráðstefnunni komu saman sérfræðingar og fagfólk frá Norðurlöndunum til að miðla þekkingu og reynslu af menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Megináhersla var lögð á inngildingu í skólastarfi, kennslu skólatungumálsins, mat á framförum í tungumálanámi og samstarf þvert á stofnanir og skólastig.
Þekkingarmiðlun og samstarf þvert á Norðurlöndin
Dagskráin var fjölbreytt og samanstóð af fjölbreyttum erindum, vinnustofum, skólaheimsóknum og faglegum umræðum. Þátttakendur kynntu rannsóknir, þróunarverkefni og starfshætti frá Norðurlöndunum. Sérstök áhersla var lögð á hvernig samstarf fagfólks og markviss tungumálakennsla getur stutt við námsframvindu, virka þátttöku og tilfinningu nemenda fyrir að tilheyra skólasamfélaginu.
Meðal íslenskra verkefna sem kynnt voru má nefna MEMM - Menntun, móttöku og menningu, Mál og læsi í Fellahverfi (MOLF), Sprett og Íslenskuþorpið. Einnig var fjallað um kennslu íslensku sem annars tungumáls og norrænan samanburð á matstækjum í tungumálanámi.
Þátttakendur heimsóttu jafnframt skóla á höfuðborgarsvæðinu og fengu innsýn í íslenskt skólastarf og fjölbreyttar leiðir til að styðja við nám og inngildingu.
Sameiginleg þekking í þágu nemenda
FLIN er norrænt samstarfsnet 20 stofnana og samtaka sem starfa á sviði fjöltyngis, tungumálanáms og inngildingar. Ráðstefnan skapaði mikilvægan vettvang fyrir faglega umræðu, ný tengsl og áframhaldandi samstarf milli Norðurlandanna.