Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Næsta skref AI hjálpar fólki að kanna leiðir í námi og starfi

9. september 2026

Ný gervigreindarlausn, Næsta skref AI, er nú aðgengileg á vef Næsta skrefs. Þar geta notendur spurt spurninga og fengið aðstoð við að kanna mögulegar leiðir í námi og starfi.

Lausnin byggir á lokaverkefni nemenda í hugbúnaðarverkfræði og tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Hún var síðar þróuð áfram og birt í samstarfi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, auglýsingastofunnar Konsept og hugbúnaðarfyrirtækisins Apró.

Nemendurnir sem þróuðu lausnina eru Hera Brá Tómasdóttir, Kateryna Tkachuk, Tómas Ari Pálsson og Valgerður Eyja Eyþórsdóttir. Næsta skref AI byggir á hugmynd þeirra og vinnu. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir samstarfið.

Á vef Næsta skrefs hefur jafnframt verið tekin í notkun ný forsíða sem auðveldar notendum að finna fjölbreyttar upplýsingar um nám, störf og mögulegar leiðir fram á við.

Spjallaðu við Næsta skref AI

Skoðaðu nýja forsíðu Næsta skrefs

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280