Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Næsta skref AI – gervigreindur vegvísir

18. júní 2026

Ný gervigreindarlausn, Næsta skref AI, er nú í þróun fyrir vefinn Næsta skref. Lausnin sækir upplýsingar af Næsta skrefi og úr Stuðningsbanka SÍF og er ætlað að auðvelda fólki að finna upplýsingar um nám, störf og starfsþróun. Næsta skref AI var þróað sem lokaverkefni fjögurra nemenda við Háskólann í Reykjavík. Til skoðunar er að opna fyrir reynsluaðgang að lausninni síðar á árinu og þróa hana áfram með hliðsjón af reynslu notenda.

Á vormisseri 2026 unnu fjórir nemendur við Háskólann í Reykjavík að lokaverkefni í hugbúnaðarverkfræði og tölvunarfræði þar sem þau þróuðu nýja gervigreindarlausn fyrir vefinn Næsta skref.

Lausnin, sem ber heitið Næsta skref AI, sækir upplýsingar af Næsta skrefi og úr Stuðningsbanka SÍF. Markmið hennar er að auðvelda fólki að nálgast upplýsingar og átta sig á mögulegum leiðum í námi og starfi með einföldum hætti.

Verkefnið var unnið með aðkomu Háskólans í Reykjavík, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Konsept og Apró. Nemendurnir sem stóðu að verkefninu eru Hera Brá Tómasdóttir, Kateryna Tkachuk, Tómas Ari Pálsson og Valgerður Eyja Eyþórsdóttir.

Næsta skref AI er enn á þróunarstigi og verður áfram unnið að umbótum á lausninni. Til skoðunar er að veita notendum reynsluaðgang að verkfærinu til að afla frekari reynslu af notkun þess og styðja við áframhaldandi þróun.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280