MMS fær Nordplus-styrk til ráðstefnu um fjöltyngi og inngildingu
6. maí 2026
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur hlotið styrk frá Nordplus til að halda norræna ráðstefnu um fjöltyngi, tungumálanám og inngildingu í skólastarfi. Ráðstefnan fer fram í Norræna húsinu dagana 23.–24. september 2026 og ber yfirskriftina Samstarf í þágu inngildingar.

Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir samtal og samstarf um hvernig menntakerfi Norðurlanda geta betur stutt nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Þar verður sjónum beint að leiðum til að efla skólastarf, námsmat og stuðning þannig að öll börn og ungmenni fái jöfn tækifæri til þátttöku og náms.
Ráðstefnan er hluti af starfi norræna samstarfsnetsins FLIN, Flerspråkighet i Norden, sem sameinar sérfræðinga á sviði fjöltyngis, tungumálanáms og inngildingar. MMS á fulltrúa í samstarfsnetinu ásamt Háskóla Íslands og Reykjavíkurborg. Aðrir þátttakendur koma meðal annars frá háskólum, ríkisstofnunum og sveitarfélögum í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi.
Samstarf og miðlun reynslu
Á ráðstefnunni verða haldin málþing og vinnustofur auk skólaheimsókna þar sem þátttakendur fá innsýn í ólíkar leiðir til að styðja við fjöltyngda nemendur í námi og skólasamfélagi. Gert er ráð fyrir að 50–60 þátttakendur sæki ráðstefnuna.
Sérstök áhersla verður lögð á stefnumótun menntayfirvalda í kennslu og námsmati skólatungumálsins og á mikilvægi samstarfs í þágu tungumálanáms og inngildingar. Vinnustofurnar verða fjórar og taka til ólíkra skólastiga auk framhaldsfræðslu. Þar verður meðal annars fjallað um hvernig Norðurlöndin vinna að því að tryggja jöfn tækifæri allra nemenda.
Í tengslum við ráðstefnuna munu þátttakendur heimsækja leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og aðila í framhaldsfræðslu. Íslenska teymið heldur utan um gögn og upplýsingar sem safnast á ráðstefnunni og gefur út skýrslu sem getur nýst til áframhaldandi þróunar og samstarfs, bæði hér á landi og á Norðurlöndum.
Í íslenska teyminu eru Þorbjörg Halldórsdóttir, Berglind Hansen og Erla Guðrún Gísladóttir frá MMS, Renata Emilsson Peskova frá Háskóla Íslands og Dröfn Rafnsdóttir frá Reykjavíkurborg.
Nánari upplýsingar má finna á vef FLIN og á vef Háskóla Íslands.