Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026

29. apríl 2026

Það er Miðstöð menntunar og skólaþjónustu mikið ánægjuefni að hafa verið tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026 í flokknum „Ráðuneyti / A-hluta stofnun / Opinbert hlutafélag“. Tilnefningin er viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið að við að efla stafræna innviði íslenska menntakerfisins.

Miðstöðin er tilnefnd fyrir tvö umfangsmikil verkefni. Annars vegar fyrir stafræna uppbyggingu menntakerfisins, þar sem verkefni á borð við Mína miðstöð, Matsferil og þátttaka í gervigreindarverkefnum með skólum hafa gegnt lykilhlutverki. Hins vegar er um að ræða sérstaka tilnefningu fyrir Nemendagrunninn, sem er ein stærsta stafræna kerfisbreyting sem ráðist hefur verið í innan íslensks menntakerfis.

Nemendagrunnurinn samræmir gagnaflæði milli 62 sveitarfélaga og um 180 grunnskóla og byggir á opnum alþjóðlegum staðli. Verkefnið hefur lagt grunn að frekari stafrænni þróun í menntakerfinu, meðal annars að því að hægt sé að leggja fyrir stöðu- og framvindupróf Matsferils rafrænt um land allt. Prófin, sem voru lögð fyrir í fyrsta skipti um allt land í mars sl., gefa börnum og skólum skýrari mynd af stöðu í námi og gera kennurum kleift að styðja markvisst við næstu skref hjá hverju barni.

„Við erum afar þakklát fyrir þessa tilnefningu. Hún er fyrst og fremst viðurkenning á því sameiginlega starfi sem unnið hefur verið í þágu barna um allt land og snýst um að skapa betri aðstæður til náms og tryggja að hvert barn fái þann stuðning sem það þarf,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280