Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Metþátttaka á ráðstefnunni Læsi til náms og yndis

14. september 2026

Metþátttaka var á læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin var við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. september. Alls skráðu 325 þátttakendur sig á ráðstefnuna, þar á meðal stórir hópar frá skólum víðs vegar af landinu.

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) standa saman að ráðstefnunni sem haldin er annað hvert ár. Þar komu saman kennarar úr leik-, grunn- og framhaldsskólum, skólastjórnendur, fræðafólk og aðrir sem láta sig læsi og mikilvægi þess í námi og skólastarfi varða.

Andrea Anna Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá MMS, setti ráðstefnuna. Ráðstefnustjóri var Sigríður Margrét Sigurðardóttir, dósent og deildarforseti Kennaradeildar Háskólans á Akureyri, og Gunnar Gíslason, forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar, sleit ráðstefnunni.

Dagskráin var fjölbreytt og samanstóð af lykilerindum, málstofum og vinnustofum þar sem sjónum var beint að mikilvægi lestrargleði samhliða árangursríkum kennsluaðferðum í lestri og ritun.

Lestrargleði og sjálfsmynd barna sem lesenda

Pernille Ripp, kennari, rithöfundur og fyrirlesari, flutti erindið Joy Is Not a Luxury: Reclaiming Humanity in Early Literacy. Erindið vakti mikla ánægju meðal þátttakenda en þar fjallaði hún meðal annars um hvernig hægt er að viðhalda lestrargleði samhliða faglegum kröfum í læsiskennslu.

Hún lagði áherslu á að fyrstu ár skólagöngunnar móti ekki aðeins lestrarfærni barna heldur einnig sjálfsmynd þeirra sem lesenda. Forvitni, valfrelsi og sjálfræði barna voru meðal þeirra þátta sem hún dró fram.

Dominic Wyse, prófessor við University College London, fjallaði í sínu erindi um gagnvirkt samband lesturs og ritunar og hvernig þessir tveir þættir þróast samhliða og styðja hvor annan í námsferlinu.

Bernskuminningar, bækur og lesendur samtímans

Rithöfundarnir Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Theodór Eggertsson fluttu erindi sitt í fjarfundarbúnaði þar sem veður kom í veg fyrir að þau kæmust til Akureyrar. Þrátt fyrir breyttar aðstæður náði erindi þeirra vel til þátttakenda.

Í erindinu ræddu þau hvernig eigin bernskuminningar hafa áhrif á skrif fyrir börn, hvernig höfundar tengjast reynsluheimi barna í dag og hvað geti vakið og viðhaldið áhuga þeirra á bókum og lestri.

Jákvæð umræða um læsi barna

Fjölbreyttar málstofur og vinnustofur fóru fram yfir daginn. Meðal þeirra var vel sótt málstofa um Jólabókaflóð barnanna í Grundarfirði.

Verkefnið varð til í kjölfar neikvæðrar umræðu um læsi barna. Markmiðið var að beina sjónum að lestraráhuga þeirra og gera sýnilegt hversu mörg börn lesa, hafa gaman af bókum og eru spennt fyrir lestri.

Öll lykilerindi ráðstefnunnar voru táknmálstúlkuð. Táknmálstúlkar voru einnig til staðar í fjölmennustu málstofunum.

MMS og MSHA þakka fyrir góða þátttöku og ánægjulegan dag sem einkenndist af áhuga, samtali og fjölbreyttum sjónarhornum á læsi til náms og yndis.

Dagskrá og fyrirlesarar ráðstefnunnar

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280