Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Menntamálastofnun og Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri standa fyrir læsisráðstefnu 18. september á Akureyri

4. mars 2024

Heiti ráðstefnunnar er „Hvað er að vera læs?“ og verður leitað svara við þeirri spurningu og hvernig skapa megi æskileg skilyrði í námi frá sjónarhóli leikskólans, grunnskólans og framhaldsskólans.

hvað er að vera læs?

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða:

  • Bragi Valdimar Skúlason fjölmiðlamaður, orðarýnir og orðasmiður.

  • Guðmundur Engilbertsson deildarforseti við kennaradeild HA sem mun fjalla um læsi á stigi djúp- og yfirfærslunáms á efri skólastigum.

Auk þrískiptra erinda eftir skólastigum:

  • Jóhanna Thelma Einarsdóttir prófessor við heilbrigðisvísindasvið HÍ sem mun fjalla um stöðu fjöltyngdra leikskólabarna á Íslandi.

  • Auður Soffíu Björgvinsdóttir aðjúnkt og doktorsnemi við menntavísindasvið HÍ og Guðbjörg R. Þórisdóttir læsisráðgjafi hjá MMS sem munu fjalla um mikilvægi sveigjanleika í heimalestrarþjálfun út frá stöðu nemenda í lestri.

  • Ívar Rafn Jónsson lektor við HA sem mun fjalla um læsi framhaldsskólanema á orðræðu og hugtakanotkun sem er við lýði í námsmati. Til viðbótar verður svo fjöldi mál- og vinnustofa sem ráðstefnugestir geta valið sig á.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@mms.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280