Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

MEMM heimsækir Suðurland – fræðsla og samtal fyrir skólasamfélagið

13. ágúst 2026

MEMM – menntun, móttaka, menning býður starfsfólki skóla, frístundastarfs og skólaþjónustu á Suðurlandi til námskeiða, vinnusmiðju og lærdómssamtals dagana 20. ágúst, 1. september og 2. september.

MEMM – menntun, móttaka, menning býður starfsfólki skóla, frístundastarfs og skólaþjónustu á Suðurlandi til námskeiða, vinnusmiðju og lærdómssamtals dagana 20. ágúst, 1. september og 2. september.

MEMM er þróunarverkefni sem miðar meðal annars að því að efla þekkingu og færni starfsfólks og auka aðgengi að verkfærum, námsefni og leiðum til að styðja við menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Í landshlutaheimsókninni á Suðurlandi verður boðið upp á þrjá viðburði fyrir ólíka markhópa. Skráning er opin til og með 18. ágúst.

20. ágúst – námskeið fyrir grunnskóla í Vík

Tími: kl. 10:30–16:00
Staðsetning: Félagsheimilið Leikskálar, Smiðjuvegur 7, 870 Vík í Mýrdal

Hagnýtt námskeið í kennslu íslensku sem annars tungumáls (ÍSAT). Fjallað verður um móttöku nemenda, kennslu ÍSAT og mikilvæga þætti tungumálanáms. Fjölmörg verkfæri, námsgögn og kennsluaðferðir verða kynnt og þátttakendur fá tækifæri til að ræða saman og miðla reynslu sinni af kennslu ÍSAT.

Námskeiðið skiptist í fyrirlestra og hagnýtar vinnusmiðjur.

Markhópur: Grunnskólakennarar sem kenna nemendum með íslensku sem annað tungumál og aðrir áhugasamir. Námskeiðið getur einnig nýst framhaldsskólakennurum.

Skráning: MEMM á Suðurlandi – grunnskólar

1. september – lærdómssamtal með stjórnendum

Tími: kl. 9:00–11:00
Staðsetning: Teams

Í lærdómssamtalinu verður fjallað um áherslur MEMM og rætt um reynslu þátttakenda, gæðaviðmið fyrir móttöku og menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og hlutverk stjórnenda í því samhengi.

Markhópur: Stjórnendur á öllum skólastigum, í frístundastarfi og skólaþjónustu sveitarfélaga. Einnig landshlutafulltrúar UMFÍ, fulltrúar farsældarráða og aðrir sem gagn geta haft af samtalinu.

Skráning: MEMM á Suðurlandi – stjórnendur

2. september – vinnusmiðja fyrir leikskóla á Hvolsvelli

Tími: kl. 9:00–12:00
Staðsetning: Félagsheimilið Hvoll, Austurvegur 4, 860 Hvolsvöllur

Í vinnusmiðjunni verður farið yfir mikilvæga þætti í móttöku og menntun leikskólabarna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Sérstök áhersla verður lögð á móttökuáætlanir, mál og læsi og inngildandi starfshætti í vinnu með börnum og fjölskyldum.

Markhópur: Leikskólakennarar og annað starfsfólk sem vinnur með fjöltyngdum börnum eða hefur áhuga á að kynna sér málaflokkinn.

Skráning: MEMM á Suðurlandi – leikskólar

Skráning til 18. ágúst

Skráning á alla þrjá viðburðina er opin til og með 18. ágúst. Þátttakendur skrá sig sérstaklega á þann viðburð sem á við þeirra starf og markhóp.

Facebook viðburður

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280