Málörvun í daglegu leikskólastarfi efld í Borgarbyggð
8. júní 2026
Í leikskólastarfi gefast mörg tækifæri á hverjum degi til að styðja við mál og læsi barna. Í Borgarbyggð hefur starfsfólk allra leikskóla sveitarfélagsins unnið markvisst að því í vetur að nýta þau tækifæri enn betur og móta sameiginlega sýn á málörvun í starfinu.

Fulltrúar leikskólanna í Borgarbyggð ásamt starfsfólki Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem komu að þróunarverkefninu Mál og læsi: Snemmtæk íhlutun í leikskólum.
Uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi: Snemmtæk íhlutun í leikskólum var haldin í Borgarbyggð síðastliðinn fimmtudag í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins. Á árinu hafa leikskólarnir rýnt í málörvunarstarf sitt, unnið að skýrara verklagi og sett niðurstöður vinnunnar fram í handbókum sem styðja við áframhaldandi þróunarstarf.
Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, skólaþjónustu Borgarbyggðar og allra leikskóla sveitarfélagsins.
Samstarfið hófst formlega í nóvember og að verkefninu komu allir leikskólar Borgarbyggðar: Andabær, Hnoðraból, Hraunborg, Klettaborg og Ugluklettur. Á fræðsludögum verkefnisins fékk starfsfólk fræðslu um málþroska, málörvun, virkt fjöltyngi og lærdómssamfélög. Fræðslan var tengd verkefnum sem starfsfólk vann áfram með innan leikskólanna og nýtti til að rýna í eigið starf.
Í vetur skoðuðu leikskólarnir hvernig málörvun birtist í daglegu starfi og hvernig hægt væri að styðja enn betur við mál og læsi barna. Starfsfólk fór yfir málörvunarefni, rýndi í verkferla og skipulagði betur þau gögn og vinnubrögð sem nýtast í málörvun. Niðurstöður þeirrar vinnu voru meðal annars rammaðar inn í handbækur leikskólanna.
Á uppskeruhátíðinni voru handbækurnar og annað efni sem varð til í verkefninu til sýnis. Fulltrúar hvers leikskóla kynntu jafnframt dæmi úr eigin starfi, sögðu frá reynslu sinni af innleiðingarferlinu og deildu því sem þau taka með sér inn í áframhaldandi starf.
Verkefnið hefur fengið jákvæð viðbrögð frá þátttakendum. Í umsögn frá starfsfólki kemur meðal annars fram að verkefnið sé „frábært verkefni sem þéttir starfsmannahópinn og veitir honum sameiginlega sýn á málörvun í leikskólastarfi“.
Sú reynsla endurspeglar vel mikilvægi þess að starfsfólk fái tækifæri til að staldra við, rýna í eigin starfshætti og þróa sameiginlegri nálgun sem nýtist börnum í daglegu leikskólastarfi.
Við lok hátíðarinnar afhenti starfsfólk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu leikskólunum bókagjafir með þökkum fyrir samstarfið og árnaðaróskum um áframhaldandi öflugt starf í þágu mál- og læsisþróunar barna.