Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Lúkas lesmús - fjöltyngd lestrarbók fyrir yngsta stig

28. maí 2026

Út er komin bókin Lúkas lesmús eftir Brynhildi Stefánsdóttur. Þetta er í fyrsta skipti sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu gefur út fjöltyngda lestrarbók fyrir yngsta stig grunnskóla.

Sagan fjallar um músina Lúkas sem bjargar lífi sínu með því að kunna að lesa. Bókin birtist á þremur tungumálum - íslensku, ensku og pólsku og býður þannig upp á fjölbreytta möguleika í læsisnámi og tungumálanámi barna.

Á hverri síðu eru spurningar sem styðja við lesskilning, ályktun og forspá. Aftast í bókinni eru orðskýringar og verkefni sem hvetja til umræðna, ritunar og frekari úrvinnslu. Áhersla er lögð á að efnið nýtist bæði í sameiginlegum lestri og sjálfstæðri vinnu nemenda.

Bókin getur einnig styrkt samstarf heimila og skóla. Tvítyngdir nemendur geta til dæmis lesið textann á íslensku í skólanum og deilt sögunni heima á pólsku eða ensku. Þannig styður efnið við læsi barna og eykur möguleika fjölskyldna til þátttöku í námi barna sinna, óháð tungumálabakgrunni.

Jafnframt gefur bókin íslenskumælandi börnum tækifæri til að kynnast öðrum tungumálum og sjá tungumál sem leið til samskipta, skilnings og nýrrar þekkingar.

Um bókina

Höfundur: Brynhildur Stefánsdóttir

Þýðingar:

  • enska: Brynhildur Stefánsdóttir

  • pólska: Elźbieta Anna Kowalczyk

Myndefni: Brynhildur Stefánsdóttir

Hægt er að skoða bókina inn á námsefnissíðunni okkar

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280