Ljóðaflóð – Ljóðasamkeppni grunnskólanema 2025
10. nóvember 2025
Ljóðaflóð er skemmtileg ljóðasamkeppni sem Miðstöð menntunar stendur fyrir í samstarfi við KrakkaRÚV. Við hvetjum kennara til að hjálpa nemendum að virkja sköpunarkraftinn og senda inn ljóð á fjölbreyttu formi. Það geta verið bundin ljóð og óbundin, ferskeytlur, limrur, hækur, tönkur og myndljóð – sannkallað ljóðaflóð! Skilafrestur er til og með 10. desember næstkomandi.

Dómnefnd velur ljóð á yngsta stigi, mið- og unglingastigi og fá vinningshafar afhent bókaverðlaun og viðurkenningarskjal. Úrval ljóða verður einnig birt á vefsíðu MMS. Úrslit keppninnar verða tilkynnt í janúar 2026, bæði á vefmiðlum MMS og á KrakkaRÚV þar sem vinningsljóðin verða flutt.
Við hvetjum kennara til að undirbúa nemendur til þátttöku; lesa ljóð og ræða upplifun, innihald og mismunandi ljóðform. Á Ritunarvefnum er margs konar fróðleikur um ljóð ásamt skemmtilegum fræðslu- og hvatningarmyndböndum um skapandi skrif. Á safnvefnum Dagur íslenskrar tungu má nálgast stuttar og hnitmiðaðar bragfræðileiðbeiningar til kennara og einnig bendum við á bækurnar Bragfræði og Limrur fyrir unglingastig grunnskóla.
Nemendur geta annaðhvort samið sitt eigið ljóð eða haft samvinnu við aðra. Þá væri t.d. upplagt að bekkurinn skoðaði í sameiningu þau ljóð sem senda á í keppnina en vanda þarf til verka hvað varðar innihald, frágang og uppsetningu. Umfjöllunarefni ljóðanna er frjálst, þau geta verið um allt það sem brennur á krökkunum.
Mikilvægt er að merkja ljóðin með nafni höfundar, bekk og skóla. Senda má ljóðin í keppnina rafrænt á netfangið elinlilja@midstodmenntunar.is eða með bréfpósti:
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Ljóðaflóð
B.t. Elínar Lilju Jónasdóttur
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi